Kynningarátak á Prima vörumerki

Í upphafi árs fórum við af stað með kynnigarátak á vörumerkinu Prima í samstarfi við Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra.

Markmið með átakinu var að auka vitund neytenda á að Prima krydd væri íslensk framleiðsla og að auki framleiðsla á Blönduósi. Meðal verkefna var gerð myndbands um framleiðsluferlið og staðsetningu framleiðslu okkar á Blönduós. Einnig höfum við lagt áherslu á að nota markaðsefni Samtaka Iðnaðarins um íslenska framleiðslu í kynningarátaki okkar. Þetta verkefni skilaði árangri og við höfum fengið mikil og jákvæð viðbrögð. Kynningarátakið var unnið með auglýsingastofunni Svartigaldur. Við þökkum Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra fyrir að leggja þessu mikilvæga verkefni lið.

Margir vissu ekki að Prima væri íslensk framleiðsla og enn færri vissu að þetta væri framleiðsla á Norðurlandi vestra.
X